Borg­ar­sögu­safn
Sagan okkar

Í Aðalstræti 10 og 16 geturðu séð hvernig Reykjavík þróaðist frá landnámi til dagsins í dag.

Sjóminjasafn

Sýningin fjallar um dularfullt hvarf fransks herskips á 19. öld.

Staðirnir okkar

Viðburðir

Árbæjarsafn

Leiðsögn á Árbæjarsafni

Leiðsögumaður fer með gesti í öll helstu hús Árbæjarsafns og segir frá sögu þeirra. Leiðsögnin fer að mestu fram á ensku og tekur rúma klukkastund.

Leiðsögn á Árbæjarsafni
Sjóminjasafnið í Reykjavík

Varðskipið Óðinn - Leiðsögn um borð

Verið velkomin í leiðsögn um borð í hinu sögufræga Varðskipi Óðni. Leiðsagnirnar fara fram á hverjum degi kl. 13, 14 og 15 frá 1. mars til 31. október. Í leiðsögninni eru þorskastríðin og björgunarsaga skipsins eru í brennidepli.

Varðskipið Óðinn - Leiðsögn um borð
Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Opnun I Svart-hvítt

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Svart-hvítt í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 18. september kl. 16-18. Veitingar í boði. Svart-hvítt nefnist sjötta sýning félaga úr Fókus félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Sýnendur eru: • Anna Soffía Óskarsdóttir • Elín Laxdal • Flóki Dagsson • Guðmunda Kristín Guðmundsdóttir • Jóhanna Esjudóttir • Regina Rist • Þóra Halldóra Björgvinsdóttir 📸 Elín Laxdal, Vilnius 2, 2026

Opnun I Svart-hvítt
Landnámssýningin Aðalstræti

Örnámskeið í hafragrautarfræðum með Björk Bjarnadóttur *Skráning nauðsynleg*

Verið velkomin á örnámskeið í hafragrautarfræðum á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16. Björk Bjarnadóttir, umhverfis-þjóðfræðingur og fyrrverandi keppandi í Heimsmeistarakeppni í hafragrautargerð í Skotlandi (The Golden Spurtle, World Porridge Making Championship) leiðir námskeiðið í samstarfi við Borgarsögusafn sunnudaginn 20. september kl. 13-15. -- Námskeiðið kostar 3.100 krónur á mann, greitt á staðnum og skráning er nauðsynleg. Skráningin fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled --

Örnámskeið í hafragrautarfræðum með Björk Bjarnadóttur *Skráning nauðsynleg*
Varðveisluhús Borgarsögusafns, Koparslétta 11, Esjumelum

Opið varðveisluhús á Koparsléttu! - Leiðsögn *Skráning nauðsynleg*

Sunnudaginn 27. september kl. 13:00-14:00 gefst tækifæri til að fara í skoðunarferð um varðveisluhús Borgarsögusafns á Koparsléttu 11 í fylgd með sérfræðingum safnsins. Ókeypis inn og öll velkomin, en skráning er nauðsynleg. -- Skráning fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled --

Opið varðveisluhús á Koparsléttu! - Leiðsögn *Skráning nauðsynleg*
Árbæjarsafn

Jóladagskrá Árbæjarsafns

Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sunnudaginn 13. desember en þá gefst gestum tækifæri að njóta aðventunnar og upplifa jólin eins og þau voru í Reykjavík í þá gömlu góðu daga. Jólaundirbúningur er í fullum gangi í bænum. Í Árbæ sker fólk út laufabrauð, kembir ull og spinnur garn. Í Hábæ bjóða húsbændur gestum að smakka íslenskt hangikjöt og í Nýlendu tálgar maður skemmtilegar fígúrur úr tré. Kæsta skatan er komin í pottinn í Efstabæ og í Miðhúsum eru prentuð falleg jólakort. Í hesthúsinu í Garðastræti eru hjúin í óðaönn að steypa kerti úr tólgi. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu. Kaffiilmur berst frá Dillonshúsi en þar er upplagt að setjast niður fá sér tíu dropa og smá bakkelsi með. Helstu viðburðir: 14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum á víð og dreif um safnsvæðið og taka þátt í söng og dansi. 14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni 15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð á torgi safnsins Frítt inn fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Aðrir greiða 2.550 kr. Vinsamlegast athugið að dagskráin endar kl. 16 en safnið er opið til kl. 17.

Jóladagskrá Árbæjarsafns

Sýningar